__
English


S-Spánn




Hvert viljið þið fara?

Heima
England  2 
Frakkland
N-Spánn
N-Portugal  2 
Lissabon  2 
S-Portugal
S-Spánn  2 
Gibraltar  2 
Ceuta  2   3 
Tetouan  2 
Costa del Sol
Síkiley  2 
Ítalía
Feneyjar  2 
Korcula
Eyjarnar  2 
Dubrovnik  2   3 


... eða smellið á tenglana neðst á hverri síðu.






SMIÐUR
Rota & Jerez, Spánn


Betra veður gerði okkur kleift að huga að ýmsum verkefnum. Kaðalstigi er t.d. bráðnauðsynlegur til þess að komast um borð ef að maður fær sér léttan sundsprett eða dettur í sjóinn (aftur...)

Dvölin í Rota byrjaði ekki vel því að þegar við vorum að taka til í bátnum varð Malcolm fyrir því óhappi að kaðalendi slóst framan í hann og sendi gleraugun hans í tignarlegum boga út fyrir bryggjukantinn og í sjóinn þar sem að þau sukku til botns. Hann átti þó sem betur fer önnur gleraugu til vara.




PÁLMAR OG APPELSÍNUTRÉ
Rota & Jerez, Spánn


Í mörgum bæjum og borgum hefur verið plantað pálmum og appelsínutrjám vegfarendum til ánægju og yndisauka. Litríkar appelsínurnar lífga svo sannarlega upp á umhverfið og við komumst að því (með því að prófa) afhverju þær voru látnar í friði. Ávextir þessa afbrigðis eru súrir með eindæmum og ekki ætlaðir til átu..





TUNNUR
Rota & Jerez, Spánn


Maðurinn sem sést aftast á þessari mynd er yfirsmakkari hússins. Hann þarf að athuga að gæði sérrísins nái settum stöðlum og hann gengur á milli raða og smakkar á afurðunum. Hættulegt starf! Skyldi hann keyra heim?




SÉRRÍ
Rota & Jerez, Spánn


Við fengum að sjálfsögðu að smakka líka! Þurrt, meðalsætt og sætt og í þeirri röð.
<< til baka        
sigling@sigling.net | Þýðingaþjónusta: www.enska.is